sudurnes.net
Íbúar hreinsa Innri-Njarðvíkurhverfi - Förguðu 11 tonnum af rusli á síðasta ári - Local Sudurnes
Íbúar Innri-Njarðvíkurhverfis munu taka höndum saman laugardaginn 13. maí næstkomandi frá klukkan 11.00-16.00 og hreinsa rusl í nærumhverfinu. Dagurinn var fyrst haldinn á síðasta ári og líkt og þá mun Reykjanesbær leggja til poka og gáma, auk þess að greiða fyrir fögun á ruslinu. Fjöldi fólks tók þátt í verkefninu á síðasta ári, sem þótti takast einstaklega vel, en um 11 tonnum af rusli var fargað. Eins og á síðasta ári verður árangrinum svo fagnað með grillveislu við Akurskóla. Skipuleggjendur óska eftir að fólk sem getur verið á bíl með kerru bjóði sig fram, en hægt er að tilkynna þátttöku á Facebook-viðburðinum. Meira frá SuðurnesjumHreyfivika UMFÍ: 520 íbúar Reykjanesbæjar syntu 400.000 kílómetraHreinsuðu rusl frá Innri-Njarðvík að Flugstöð Leifs EiríkssonarUm 150 nemendur FS tóku þátt í árlegum forvarnardegi ungra ökumannaFörguðu 11 tonnum af rusli á rusladeginum í Innri-Njarðvík – Myndir!Árleg vorhreinsun í ReykjanesbæÁrleg vorhreinsun hefst í dagSystur deildu fyrsta sæti í stærðfræðikeppni FSÆtla sér sigur í sundkeppni sveitarfélaga – Frítt í sund í Reykjanesbæ á föstudag!Fermingar fyrr og nú á Bókasafni Reykjanesbæjar – Óska eftir fermingarmyndum bæjarbúaAfhentu Reykjanesbæ góða gjöf