Nýjast á Local Suðurnes

Íbúafundur vegna óvissustigs

Boðað hefur verið til íbúafundar í íþróttahúsinu í Grindavík á morgun, fimmtudaginn 19. maí, klukkan 19:30 vegna óvissustigs sem lýst hefur verið yfir vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Fundurinn verður einnig í beinu streymi. 

Í lok fundarins verður samantekt á pólsku fyrir pólskumælandi íbúa. 

Búast má við fjölmennum fundi og fólk er því hvatt til að skilja bílinn eftir heima. Við minnum þó á stór bílastæði t.d. við Hópið, á tjaldsvæðinu og við verslunarmiðstöðina.