Íbúafundur í Sandgerði
Boðað er til íbúafundar miðvikudaginn 15. nóvember um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar fyrir tímabilið 2018-2021. Fundurinn verður haldinn að Miðnestorgi 3, í fundarsal Vörðunnar á fyrstu hæð og hefst kl. 20. Á fundinum verður farið yfir fjárhagsáæltun og starfsáætlun bæjarins sem nú er til vinnslu og verður afgreidd á fundi bæjarstjórnar 5. desember.
Á fundinum gefst íbúum tækifæri til þess að kynna sér rekstur bæjarfélagsins og koma sjónarmiðum sínum um fjárhagsáætlun næstu fjögurra ára á framfæri.
Allir eru hjartanlega velkomnir.