sudurnes.net
ÍAV bauð best í vegtengingu við Hafnaveg - Local Sudurnes
Þann 10. apríl síðastliðinn voru tilboð opnuð í verkið Gerð nýrrar vegtengingar Hafnavegar (44-01) við Reykjanesbraut, við hringtorg við Fitjar. Fjögur tilboð buðu í verkið og áttu Íslenskir aðalverktakar hf. lægsta tilboðið, tæplega 119.000.000 króna sem er um 87% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar Verkið felst í nýbyggingu vegarins á um 850 m löngum kafla, og lokun á núverandi gatnamótum Reykjanesbrautar og Hafnavegar vestan við hringtorgið, með tilheyrandi rifi malbiks og yfirborðsfrágangi umferðareyja Reykjanesbrautar, sem og landmótun og yfirborðsjöfnun utan hennar. Íslenskir aðalverktakar hf. áttu sem fyrr segir lægsta boð, tæplega 119 milljónur króna. Verklok eru 15. september 2018, gerð Hafnavegar skal þó lokið fyrir 15. ágúst 2018. Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr. Ístak hf., Mosfellsbæ 160.627.218 117,2 41.734 Háfell ehf., Reykjavík 153.622.800 112,1 34.730 Áætlaður verktakakostnaður 137.100.000 100,0 18.207 Ellert Skúlason ehf. Reykjavík 122.875.500 89,6 3.982 Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík 118.893.244 86,7 0 Meira frá SuðurnesjumÍstak bauð lægst í gerð hringtorga við ReykjanesbrautTafir á framkvæmdum við hringtorg á Reykjanesbraut – Þjóðbraut lokuð við SmiðjuvelliÍAV bauð lægst í undirbúningsvinnu vegna Suðurnesjalínu 2Hringtorg á Reykjanesbraut boðin út – Isavia aðili að útboðinuÍAV bauð best í tvöföldun ReykjanesbrautarVilja setja uppbyggingu á gervigrasvelli í forgangHnefaleikafélag Reykjaness 15 ára – Fagna tímamótunum með boxkvöldi á [...]