sudurnes.net
Í mál við ríkið vegna nauðungarsölu - Local Sudurnes
Öryrkjabandalag Íslands hefur ákveðið að höfða mál gegn íslenska ríkinu vegna nauðungarsölu sýslumanns á húsi öryrkja í Reykjanesbæ fyrr í sumar. Hús mannsins var sett á nauðungaruppboð vegna 2,5 milljóna króna skulda, sem hann hafði ekki greitt. Þrátt fyrir að húsið sé metið á um 57 milljónir króna, var það selt á uppboði á þrjár milljónir króna. Málið hefur verið töluvert í fréttum, en á nauðungaruppboðinu var hæsta boði tekið. Í lögum um nauðungarsölu segir hins vegar að sýslumaður geti ákveðið að uppboð skuli endurtekið ef tilboð sem berast eru „svo lág að fari fjarri líklegu markaðsverði eignarinnar“, segir á vef RÚV, sem fjallar um málið í dag. Meira frá SuðurnesjumSkálað í vatni við verklokÞetta þarf að hafa í huga rofni þjónusta veitufyrirtækja vegna náttúruhamfaraReynir á samtakamátt íbúa – Leiðbeiningar frá HS VeitumOrkuinnviðir ekki í hættuFærri en búist var við hafa sótt um frestun fasteignagjaldaLánuðu fjórgasmæla og fengu vandaða tölvuskjái að gjöfVilja byggja tvær hæðir ofan á Hafnargötu 57Suðurnesjahönnuðir selja gjafavörur í Svarta PakkhúsinuFriðjón: “Engar útleiðir fyrir sveitarfélög út úr svona verkefnum”Grindavíkurbær undirbýr starfslok bæjarstjóra – Lögfræðikostnaður safnast upp