Nýjast á Local Suðurnes

Hvetja viðskiptavini til að bíða með að greiða reikninga frá HS Orku og HS veitum

Mynd: Skjáskot / Já.is

Neytendasamtökin eru með mál er varða reikninga HS Orku og HS Veitna til skoðunar, en fyrirtækin hyggjast innheimta greiðslur, fjögur ár aftur í tímann, vegna mistaka við gerð reikninga á því tímabili.

Samtökunum hafa borist fjöldi ábendinga frá félagsmönnum um að vegna umræddra mistaka, sem snúa að því að fyrirtækin hafi ekki innheimt greiðslur fyrir raforkusölu fyrirtækjanna undanfarin ár og ætli nú að innheimta greiðslur, fjögur ár aftur í tímann.

Í tilkynningu á vef Neytendasamtakanna segir að í reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar segir skýrt að komi villa í reikningi, mælingu eða mælaálestri á dreifiveita rétt á að innheimta viðbótarupphæð sem leiðréttingunni nemur tvö ár aftur í tímann.

Það er bráðbirgðaniðurstaða Neytendasamtakanna að sá hluti kröfunnar sem er eldri en tveggja ára geti verið fyrnd. Þar af leiðir að HS orku / HS veitum sé einungis heimilt að innheimta fyrir ógjaldfærða notkun tvö ár aftur í tímann.

Neytendasamtökin eru með málið til skoðunar og hafa meðal annars sent fyrirspurn til HS orku / HS veitna og óskað eftir skjótum viðbrögðum.

Neytendasamtökin hvetja félagsmenn til að bíða með að greiða reikningana þar til á eindaga eða fá frest frá HS orku / HS veitum þar til niðurstaða fæst í málinu.