sudurnes.net
Hvessir hressilega - Local Sudurnes
Í dag geng­ur í suðaustan­kalda með smá rign­ingu eða slyddu á sunn­an- og vest­an­verðu land­inu en mun hæg­ara og bjartviðri norðaust­an til. Á morg­un nálg­ast kröpp og djúp lægð frá Ný­fundna­landi. Hvess­ir þá úr austri og verður hvass­ast við suðuströnd­ina, jafn­vel staðbund­inn storm­ur um kvöldið. Lítlis­hátt­ar væta víða um land en þurrt að kalla fyr­ir norðan. Áfram­hald­andi hvass­ir vind­ar og úr­komu­samt fram á sunnu­dag þegar læg­ir loks og rof­ar til en frem­ur hlýtt miðað við árs­tíma, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands um veðrið næstu daga. Veðrið næstu daga samkvæmt spá veðurstofu: fimmtu­dag:Geng­ur aust­an 13-20 m/​s með rign­ingu á S-verðu land­inu, hvass­ast syðst og jafn vel storm­ur þar um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig. Hæg­ara og þurrt fyr­ir norðan og hiti kring­um frost­mark. Á föstu­dag:Norðaust­an 13-20 m/​s, hvass­ast á Vest­fjörðum með tals­verðri rign­ingu S- og A-lands, en ann­ars úr­komum­inna. Hiti 1 til 7 stig, mild­ast syðst. Á laug­ar­dag (fyrsti vetr­ar­dag­ur):Útlit fyr­ir norðaust­an­hvassviðri, jafn vel storm með tals­verðri rign­ingu á A-helm­ing lands­ins, en ann­ars úr­komum­inna og milt í veðri. Á sunnu­dag:Stíf norðaustanátt NV-til, en ann­ars mun hæg­ari vind­ar. Væta í flest­um lands­hlut­um og frem­ur hlýtt í veðri. Á mánu­dag:Lík­lega hæg norðanátt með skúr­um élj­um, en úr­komu­lítið syðra og frem­ur [...]