sudurnes.net
Hvatagreiðslur nýtist til móðurmálsfræðslu í Reykjanesbæ - Local Sudurnes
Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur jákvætt í erindi sem gerir börnum af erlendu bergi brotnu kleift að nýta hvatagreiðslur Reykjanesbæjar til móðurmálsfræðslu og hefur falið þrótta – og tómstundaráði að taka málið til skoðunar. Hafþór Barð Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar segist vera ánægður með að bæjarráð hafi tekið vel í erindið og segir málið í vinnslu. Hafþór segir líklegt að móðurmálsfræðslan verði unnin í samstarfi við Pólska skólann í Reykjavík og Saga Akademía á Ásbrú, ef af verður, en nokkur börn á grunnskólaaldri eru nú þegar að nýta sér þjónustu þessara aðila. Þá segir Hafþór að fræðslan sem hægt yrði að nýta hvatagreiðslurnar í myndi fara fram utan skólatíma. Meira frá SuðurnesjumLeggja 10 milljónir króna í að bjarga minjum af varnarsvæðinu frá glötunStofna íbúaráð – Vilja að íbúar komi að ákvarðanatökuÁ Ólafur Ragnar 7.300 bindi? – Vangaveltur Árna Árna á föstudegiÍbúum fjölgar í Vogum – Mögulegt að lóðum verði úthlutað á miðbæjarsvæðiSorphirða í sögulegum ólestri – “Til hamingju með að vera mestu sóðar landsins”Æfingin skapar meistarann – Sendu sigmanninn niður í þrönga og djúpa holuRýmingaráætlun klár fyrir GrindavíkJustin Bieber og Útvarp Saga koma fyrir í föstudagspistli Árna ÁrnaMisjöfn viðbrögð við úrræði Heimavalla – Íbúar ósáttir en formaður VR segir úrræðið fagnaðarefniLionsmenn afhentu Grindavíkurbæ [...]