Nýjast á Local Suðurnes

Hundur handsamaður – Myndaður við að japla á hænu

Myndin tengist fréttinni ekki að öðru leyti en því að á henni eru hundur og lögreglumenn

Það óhapp varð í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni að hundur komst í hænur og drap tvær þeirra.

Nágranni  hænsnaeigenda náði að mynda atvikið og á myndinni sást hundurinn vera að japla á annarri hænunni. Hann var síðan handsamaður og færður til Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Hann reyndist vera óskráður en mun vera kominn til eiganda síns.