Hundruð barna í sóttkví – Svona virkar þetta!
um 300 leikskólabörn af leikskólunum Holti og Stapaskóla í Reykjanesbæ og Gefnarborg í Garði eru í sóttkví eftir að kórónuveirusmit greindust á leikskólunum. Sérstakar reglur gilda um börn í sóttkví og hefur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fengið fjölda fyrirspurna vegna þessa. Stofnunin birti svör við helstu spurningum á Facebook-síðu sinni.
Vegna fyrirspurna sem borist hafa til HSS varðandi börn í sóttkví er rétt að taka fram eftirfarandi:
Ef barn er sett í sóttkví þarf annað foreldrið að taka að sér að vera með barninu í sóttkví.
Foreldrar mega ekki skipta með sér sóttkví því þá eru fleiri útsetttir fyrir smiti.
Skipta þarf upp heimilinu eins og kostur er og gæta að smitvörnum.
Á sjöunda degi fer barnið í sýnatöku en ekki foreldrið. Ef annað eða bæði fá einkenni innan þessa sjö daga, þurfa þau að bóka sig í einkennasýnatöku.
Mikilvægt er að mæta alls ekki veik í sóttkvíarsýnatökuna.