Nýjast á Local Suðurnes

Hundraðkisumálið: Vantar mat og kattasand

Forsvarskonur dýraverndunarfélagsins Villikatta hafa fjarlægt meira en fimmtíu ketti af heimili konu á Suðurnesjum á undanförnum vikum. Kett­irn­ir voru á öll­um aldri, al­veg frá því að vera tveggja daga gaml­ir og upp í margra ára gamla ógelta fressketti og læður. Enn eru nokkri tugir katta eft­ir á heim­il­inu sem flestir eru mjög veik­ir og illa haldn­ir, þar á meðal kett­linga­full­ar læður og ný­fædd­ir veik­ir kett­ling­ar, segir í frétt mbl.is um málið.

Dýraverndunarfélagið Villikettir sem hefur séð um að útvega köttunum mat og reynt eftir megni að finna þeim ný heimili hefur óskað eftir aðstoð almennings við að útvega dýrunum mat.

„Fé­lagið okk­ar er ein­fald­lega uppiskroppa með fjár­magn og úrræði vegna þessa máls og því get­um við ekki tekið fleiri þótt við fegn­ar vild­um.“ Sögðu forsvarskonur Villikatta.

Þá er hægt að styrkja félagið með fjárframlögum, félagið er rekið á árgjöldum félagsmanna og reiðir sig á sjálfboðaliða.

Reikningsnúmer félagsins er 0111-26-73030 og kennitala 710314-1790.