sudurnes.net
Humarþjófnaður upplýstur - Höfðu selt hluta þýfisins - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur upplýst mál er varðar þjófnað á miklu magni af humri frá Humarsölunni í Reykjanesbæ. Tveir einstaklingar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins og játuðu þeir að hafa brotist inn í frystigám aftan við húsnæði Humarsölunnar. Ljóst er að a.m.k. annar mannanna hafði selt eitthvert magn áður en lögregla hafði hendur í hári þeirra tveggja, segir í tilkynningu frá lögreglu. Talið er að um 350 kíló af humri hafi horfið úr gámnum en lögregla hefur ekki endurheimt nema hluta þýfisins. Rannsókn málsins er á lokastigi. Þeim tilmælum er því beint til fólks að kaupa ekki humar sem grunur gæti legið á að væri illa fenginn. Meira frá SuðurnesjumUmhverfisstofnun stöðvaði niðurrif á rússatogaraEnn mikið ónæði af flugumferð yfir ReykjanesbæAðeins tæp 9% kusu í rafrænum íbúakosningumRafmagnsvagn kom vel út á KeflavíkurflugvelliMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnFöstudags Árni Árna er ánægður með bæjarstjóra ReykjanesbæjarAllt hreint mun sjá um hreingerningar í grunnskólum ReykjanesbæjarEldspúandi á baðfötum í saltgeymslu í leyfisleysiMögulegt að gæludýr verði leyfð í strætóAukaaðalfundur Knattspyrnudeildar Keflavíkur: Baldur mun ekki bjóða sig fram til formanns