Nýjast á Local Suðurnes

Humarþjófnaður upplýstur – Höfðu selt hluta þýfisins

Lögreglan á Suðurnesjum hefur upplýst mál er varðar þjófnað á miklu magni af humri frá Humarsölunni í Reykjanesbæ. Tveir einstaklingar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins og játuðu þeir að hafa brotist inn í frystigám aftan við húsnæði Humarsölunnar.

Ljóst er að a.m.k. annar mannanna hafði selt eitthvert magn áður en lögregla hafði hendur í hári þeirra tveggja, segir í tilkynningu frá lögreglu.

Talið er að um 350 kíló af humri hafi horfið úr gámnum en lögregla hefur ekki endurheimt nema hluta þýfisins. Rannsókn málsins er á lokastigi.

Þeim tilmælum er því beint til fólks að kaupa ekki humar sem grunur gæti legið á að væri illa fenginn.