sudurnes.net
HUG verktakar breyta gjöf fasteignafélaga í leikskóla - Local Sudurnes
HUG verktakar áttu lægsta tilboð í breytingar á Skógarbraut 932 á Ásbrú í leikskóla. Tilboðið hljóðaði upp á tæplega 74 milljónir króna og hefur bæjarráð samþykkt að ganga til samninga við vertakafyrirtækið um framkvæmdina. Útboðið á verkinu var unnið í samvinnu við Ríkiskaup og buðu fjögur fyrirtæki í verkið. Húsnæðið var fært Reykjanesbæ að gjöf af fasteignafélögum sem hafa starfsemi á Ásbrú og verður samið um verkið með fyrirvara um afhendingu og útgáfu afsals fyrir fasteigninni að Skógarbraut 932. Hér fyrir neðan má sjá tilboð í verkið auk kostnaðaráætlunar Reykjanesbæjar: Bjóðandi: Hýsi Heildartilboðsupphæð með VSK: 118.307.870,- Bjóðandi: Hjálmarsson ehf. Heildartilboðsupphæð með VSK: 99.464.349,- Bjóðandi: TSA ehf. Heildartilboðsupphæð með VSK: 76.993.340,- Bjóðandi: HUG verktakar ehf. Heildartilboðsupphæð með VSK: 73.949.142,- Kostnaðaráætlun: 77.867.098,- Meira frá SuðurnesjumHUG-Verktakar áttu lægsta tilboð í endurbætur á viðhaldsverkstæði IsaviaKeilir þarf traustan fjárhagslegan grunn til að takast á við breytta tímaFjögurra tíma rafmagnsleysi á morgunÞetta gerist ef þú setur þvottavél fulla af múrsteinum á trampólín – Myndband!Vilja byggja 74 íbúðir við Hafnargötu 12 – Opinn kynningarfundurGrindvíkingar í úrslit GeysisbikarsinsSegja upp og endurnýja ekki leigusamninga sem eru við það að renna útHérna leynast mögulega vísbendingar í gjafaleik Suðurnes.net!Orkusalan gefur Reykjanesbæ rafbílahleðslustöðSektaður um 70 þúsund krónur fyrir sex grömm