Nýjast á Local Suðurnes

HS Orka kynnir drög að tillögu að matsáætlun

HS Orka hf. kynnir drög að tillögu að matsáætlun vegna meðferðar og förgunar útfellinga frá Reykjanesvirkjun í Reykjanesbæ. HS Orka er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf. Í drögum að tillögu að matsáætlun er gerð grein fyrir meðferð og förgun útfellinga með aukna náttúrulega geislun sem myndast við holutoppa og í safnæðum Reykjanesvirkjunar.

Þá er einnig fjallað um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í frummatsskýrslunni og fyrirliggjandi gögn sem nýtt verða í matsvinnunni.Drög að matsáætlun eru aðgengileg á heimasíðu HS Orku, www.hsorka.is, og VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is. Hægt er að senda ábendingar og athugasemdir um drögin á netfangið kristin@vso.is.

Frestur til að senda inn ábendingar er til 19. janúar 2017.

Hér má finna drög að Matsáætlun .