HS Orka kynnir drög að tillögu að matsáætlun vegna virkjunar
Hafið er mat á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar Brúarvirkjunar í Biskupstungum, Bláskógabyggð.
HS-Orka er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af Mannviti. Í drögum að tillögu að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd lýst og fjallað um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í mati á umhverfisáhrifum. Einnig er greint frá því hvaða gögn eru fyrir hendi og verða nýtt við matið og hvaða athuganir er fyrirhugað að ráðast í sérstaklega í tengslum við mat á umhverfisáhrifum.
Öllum er frjálst að senda inn ábendingar eða athugasemdir bréfleiðis á neðangreint póstfang eða með tölvupósti á netföngin: ab@hsorka.is og rb@mannvit.is.