sudurnes.net
Hröðun á landrisi við Litla Hrút - Local Sudurnes
Merki um landris á Reykjanesskaga mældust fljótlega eftir að eldgosinu við Litla Hrút lauk í byrjun ágúst í sumar, á svipuðum slóðum og það var fyrir gosið 10. júlí sem stóð yfir í um 4 vikur. Nýjustu GPS mælingar gefa nú vísbendingar um hröðun á landrisinu. Líkurnar á því að nýr kvikugangur myndist undir Fagradalsfjalli hafa aukist og getur sú þróun átt sér stað á næstu vikum eða mánuðum. Þetta kemur fram í færslu Veðurstofunnar á Facebook. Nánari upplýsingar má finna með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan: https://www.vedur.is/um-vi/frettir/hrodun-a-landrisi-a-reykjanesskaga Meira frá SuðurnesjumYfir þúsund skjálftar við GrindavíkFærðu listaverk út úr flugstöðinni vegna fjölgunar farþegaFjórtan skjálftar við Grindavík – Enn greinilegt landris í gangiFóru eftir leiðbeiningum GPS-tækis og enduðu pikkfastir ofan á ruslatunnuÁhugaverð störf í boði hjá ReykjanesbæNeyðarstjórn yfirfer viðbragðsáætlanirDregið úr skjálftavirkni og ekkert landrisLærðu nýjustu klipputækniEnn finna Grindvíkingar fyrir skjálftumVerulega dregið úr skjálftavirkni í nágrenni Grindavíkur