Nýjast á Local Suðurnes

Hreingerningarfólk fann talsvert magn af fíkniefnum

Lögreglumenn í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum voru um helgina kvaddir um borð í flugvél á Keflavíkurflugvelli þar sem hreingerningarfólk hafði fundið fíkniefni  við eitt sæti hennar. Um var að ræða talsvert magn af kannabisefnum í loftþéttum plastumbúðum ofan í plastíláti.

Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem var að aka frá flugstöðinni með of marga farþega í bílnum. Í aftursætinu sat móðir undir barni sínu sem þar af leiðandi var ekki í öryggisbelti né barnabílstól. Ökumaðurinn var sektaður og tveir farþegar fóru úr bílnum og gengu aftur til flugstöðvarinnar. Barnið var sett í barnabílstól sem hafði verið geymdur í farangursrými bifreiðarinnar.