Nýjast á Local Suðurnes

Hrasaði um ferðatösku og lenti á andlitinu

Flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum var á dögunum tilkynnt um einstakling sem dottið hafði á andlitið í brottfararsal. Hafði viðkomandi hrasað um ferðatösku og ekki náð að bera hendurnar fyrir sig. Farþeginn hlaut skrámur, en ekki alvarlegar, og hélt áfram för sinni eftir að hafa fengið aðhlynningu á staðnum.

Þá þurfti að lenda þurfti flugvél frá American Airlines á Keflavíkurflugvelli í vikunni vegna veikinda farþega. Vélin var í áætlunarflugi frá Chicago til Venice á Ítalíu. Læknir var um borð og leit hann til með sjúklingnum þar til að lent var í Keflavík. Farþeginn var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.