Nýjast á Local Suðurnes

Hluti Njarðvíkur án rafmagns í nótt

Vegna viðhaldsvinnu í dreifistöð við Steinás í Njarðvík, aðfaranótt 13. janúar, er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan á vinnu stendur. Gert er ráð fyrir að rafmagn verði tekið af klukkan 00:00 og að það verði komið aftur á eigi síðar en klukkan 05:00 að morgni 13. janúar.

Eigendur fasteigna á þessu svæði sem skráð hafa símanúmerin sín inn á mínar síður hjá HS veitur munu fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS skilaboðum. 

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá svæðið sem verður án rafmagns á ofangreindum tíma: