sudurnes.net
Hluti grunnskólabarna fær strætókort án endurgjalds - Local Sudurnes
Meirihluti bæjaráðs Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. janúar að þeir nemendur í grunnskólum sveitarfélagsins sem þurfa að sækja skólaúrræði utan skólahverfis eigi rétt á strætókorti. Jafnframt var samþykkt að nemendur í 1.-10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar sem búa í meira en 1,5 km göngufjarlægð frá hverfisskóla sínum fái jafnframt strætókort án endurgjalds. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við afgreiðsluna, líkt og þeir hafa gert þegar málefni strætó eru til umræðu, en þeir eru ekki hlyntir gjaldtöku í fyrir þjónustuna. Árni Sigfússon og Böðvar Jónsson, fulltrúar flokksins í bæjarráði lögðu fram eftirfarandi bókun: “Við undirritaðir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sitjum hjá við afgreiðslu málsins þar sem við höfum frá upphafi lagst gegn gjaldtöku í strætó og tökum því ekki afstöðu til útfærslu á henni.” Meira frá SuðurnesjumMikil skjálftavirkni á Reykjanesi undanfarnar vikur110 íbúðir rísa við FramnesvegÁrekstrar og dóp í umferðinniFjórir skjálftar yfir 4 að stærð í nóttFara í viðhald gatna og kynna djarfar hugmyndir um úrbætur á ReykjanesbrautKæstar kræsingar og mikið stuð á þorrablóti Lionsklúbbs NjarðvíkurFramkvæmdir við gerð hringtorga á Reykjanesbraut hefjast í næstu vikuAðsent: Athugasemdir við frétt um fjárhagsaðstoð flóttafólksÁgætlega orðað bréf dugði ekki til að fá að byggja stærraMargbrotlegur ökumaður tekinn úr umferð