Nýjast á Local Suðurnes

Hluti efri byggða Keflavíkur án rafmagns í nótt

Til stendur að fara í viðhaldsvinnu í dreifistöð HS Veitna við Heiðarholt í nótt.

Það er því óhjákvæmilegt að fasteignir sem standa í nágrenni við stöðina verði án rafmagns á meðan á vinnu stendur. Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 05:00 að morgni 4. desember.

Í tilkynningu  er að venju beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum HS Veitna.