sudurnes.net
Hlupu uppi ölvaðan ökumann - Local Sudurnes
Lögreglumenn á Suðurnesjum hlupu í nótt uppi ökumann sem hafði ekið á grindverk og var grunaður um ölvunarakstur. Ökumaðurinn hafði tekið bifreiðina ófrjálsri hendi en ekki komist langt því hann ók á grindverk skammt frá. Þegar hann sá lögreglumenn nálgast tók hann til fótanna. Hann sinnti í engu tilmælum um að nema staðar en var þá hlaupinn uppi, færður í handjárn og á lögreglustöð. Þar kom í ljós að hann hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Hann viðurkenndi áfengisneyslu. Fjarlægja þurfti bifreiðina með dráttarbifreið og urðu talsverðar skemmdir á grindverkinu. Meira frá SuðurnesjumOddur V. Gíslason kominn með skútuna í tog – Skipverjar úrvinda af þreytuRafmagnsvagn kom vel út á KeflavíkurflugvelliBergrún Dögg sigurvegari í Stóru upplestrarkeppninniEldur kom upp í fjölbýliKomufarþegar geta nýtt sér leið 55Hefja framkvæmdir við leikskóla á Ásbrú – Húsnæðið gjöf frá fasteignafélögumEr það refsing að krúttast á Kvíabryggju í rándýrri Boss peysu chillandi á Skype?Heitavatnslaust á Suðurnesjum í nótt – Enn vatnslaust í VogumFlugvél Icelandair hætti við lendingu þar sem önnur flugvél var á brautinniNemendur FS geta ekki nýtt sér strætó