Herinn framkvæmir fyrir milljarða á Keflavíkurflugvelli
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna gerir ráð fyrir að kostnaður við breytingar á flugskýlum á Keflavíkurflugvelli, vegna komu P-8 flugvéla til landsins, muni nema allt að 2,7 milljörðum króna. Þar af er gert er ráð fyrir að um 650 milljónir króna fari í að koma upp nauðsynlegri hreinsiaðstöðu og um 200 milljónir í skipulags- og hönnunarvinnu. Þetta kemur fram á vef Morgunblaðsins.
Athyglisvert: Ætli herinn sé með þennan á “speed dial”?
Auk uppsetningar á hreinsiaðstöðu þarf að gera breytingar á dyrum flugskýlanna auk þess sem nauðsynlegt er að koma rafmagnsmálum í horf þannig að hægt sé að þjónusta flugvélarnar, þá kemur fram á mbl.is að mála þurfi línur á flugvöllinn. Einnig þarf að styrkja gólf í flugskýlunum vegna þyngdar P-8 vélanna.