sudurnes.net
Herða reglur á HSS á ný - Local Sudurnes
Heimsóknareglur á D-deild Heilbrigðisstofnunnar Suðurnesja hafa verið hertar á ný, en heimsóknir verða nú leyfðar á milli klukkan 18 og 20 með ákveðnum skilyrðum: • Einn gestur per sjúkling á dag (og eftir atvikum einn fylgdarmaður)• Hver heimsókn að hámarki í eina klst.• Þeir sem ætla að koma í heimsókn þurfa að hringja milli kl 13 og 16 og bóka heimsóknartíma. S. 422-0636• Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn (ásamt fylgdarmanni þar sem það á við) gestur mætir í heimsókn eða ef þeir eiga ekki bókaðan heimsóknartíma. ATHUGIÐ að sem fyrr mega gestir ekki koma í heimsókn ef þeir:• eru í sóttkví• eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku)• hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift• eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.) Ef smit vegna COVID-19 aukast eða smit vegna annarra smitsjúkdóma, gæti reglur varðandi heimsóknir verið hertar enn frekar. Meira frá SuðurnesjumOpna fyrir heimsóknir á HSSFrekari tilslakanir á heimsóknarreglum sjúkradeildar HSSLétta á heimsóknareglumGuðbrandur situr hjá – “Fengið yfir okkur dembur af ýmsu tagi”Safna samtölum varðandi jarðskjálftana og eldgosinBonn­eau gæti spilað í úrslitakeppninni – Flest lið hefðu sent [...]