Nýjast á Local Suðurnes

Herða reglur á Hrafnistuheimilum

Mynd: Já.is

Neyðarstjórn Hrafnistu hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu til aðstandenda Hrafnistuheimilanna, þar á meðal heimilanna í Reykjanesbæ, Nesvalla og Hlévangs:

Ágætu aðstandendur,

Þar sem COVID-19 smitum hefur fjölgað í samfélaginu síðustu daga teljum við nauðsynlegt að bregðast við til að vernda okkar viðkvæma hóp íbúa. Landlæknir hvatti hjúkrunarheimili í gær til að endurskoða heimsóknarreglur sínar. Neyðarstjórn Hrafnistu hefur því ákveðið að takmarka þann fjölda sem kemur inn á heimilið á hverjum tíma á þann hátt að aðeins má einn aðstandandi heimsækja hvern íbúa.

Heimsóknarreglur:

  • Aðeins einn aðstandandi má heimsækja hvern íbúa hverju sinni. Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf að fá leyfi stjórnenda deildar.
  • Viðkomandi þarf að spritta hendur um leið og komið er inn, í upphafi heimsóknar.
  • Við biðjum ykkur um að fara beint inn á herbergi til íbúans og ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi biðjið þá starfsfólk um að sækja hann, ekki gera það sjálf.
  • Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Að heimsókn lokinni farið þá beint út án þess að stoppa og spjalla á leiðinni. Vinsamlegast sprittið hendur við brottför.

Vinsamlega kynnið ykkur eftirfarandi reglur:

a. Ekki koma í heimsókn ef þú ert í einangrun eða sóttkví.
b. Ekki koma í heimsókn ef þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.

c. Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl). 
d. Ekki koma í heimsókn ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

Þessar reglur taka gildi strax, 29. júlí 2020.

Þessar reglur verða endurskoðaðar eftir þörfum og verðið þið upplýst um leið og einhver breyting verður.

Með vinsemd og virðingu,

Neyðarstjórn Hrafnistu