sudurnes.net
Henti frá sér fíkniefnum þegar lögregla nálgaðist - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum fann umtalsvert magn af meintum fíkniefnum, amfetamíni, í húsleit sem gerð var í íbúðarhúsnæði í umdæminu fyrr í vikunni. Einnig fundust tveir hnífar og öxi. Grunur leikur á að fíkniefnasala hafi farið fram á staðnum. Húsráðandi játaði brot sitt að hluta við skýrslutöku. Þá var ökumaður sem lögregla tók úr umferð með meint LSD í fórum sínum. Hann var ökuréttindalaus og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar karlmaður sem lögregla hafði afskipti af henti frá sér fíkniefnum þegar hann varð var við að lögreglumenn ætluðu að hafa tal af honum. Meira frá SuðurnesjumTekinn með piparúða og stolið greiðslukortÞrír handteknir vegna gruns um fíkniefnasöluSprengdu flugelda inni í nýbygginguFlott flugeldasýning á Ljósanótt þrátt fyrir slæmt skyggniReyni veitt viðurkenning fyrir framlag til atvinnu-, ferða- og menningarmálaHaldlögðu öxi og gaddakylfu auk fíkniefna við húsleitHandtekinn vopnaður öxi í miðbæ ReykjanesbæjarDýrum munum stolið á meðan húsráðandi svafSkemmdi lögreglubíl með öxiEkki við Vegagerðina að sakast – Undir stjórnmálamönnum komið að gera breytingar