sudurnes.net
Helstu áherslur í Reykjanesbæ næsta árið - Nýr leikskóli og ný heilsugæslustöð - Local Sudurnes
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar 2023 til og með 2026 var samþykkt á bæjarstjórnarfundi þann 6. desember síðastliðinn. Í áætluninni eru helstu áherslur og verkefni næsta árs tilgreind, en það má sjá hér fyrir neðan. Helstu áherslur og verkefni í Reykjanesbæ á árinu 2023: Hvatagreiðslur fyrir 4-5 ára börn verður í fyrsta sinn í boði á árinu 2023Nýr leikskóli byggður í Dalshverfi III og áætlað að taka á móti 50-60 börnum um haustið 2023Framkvæmdir við 6 deilda leikskóla í Hlíðarhverfi hefjast að hálfu verktaka sem mun skila byggingunni til ReykjanesbæjarKlára byggingu íþróttamiðstöðvar við Stapaskóla með viðurkenndum keppnisvelli fyrir íþróttir innanhúss ásamt sundlaugÁframhaldandi vinna við að koma Myllubakkaskóla í starfhæft ástand sem mun taka nokkur árNýr vaktturn í Sundmiðstöðinni til að auka öryggi sundlaugagestaUnnið að viðgerðum á húsnæði sem ekki er í notkun vegna t.a.m. rakaskemmda.Unnið verður að byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í samvinnu við ríkiðUnnið verður að innleiðingu stafrænna lausna í gegnum samstarfsvettvang sveitarfélaganna og hjá ReykjanesbæVinna við byggingu nýs hjúkrunarheimilis í samvinnu við ríkið heldur áframLokið við mótun markaðsstefnuSjálfbærnifulltrúi mun fylgja eftir og innleiða umhverfis- og loftlagsstefnuGæðastjóri mun halda áfram með innleiðingu og fræðslu á barnvænu sveitarfélagi í samstarfi við UNICEFÁfram verður unnið að heilsustígagerð og stígar kláraðir á ÁsbrúFjármunir settir í uppbyggingu [...]