sudurnes.net
Heitt vatn á leið í hús - Local Sudurnes
Rafmagnsleysi fyrr í dag varð þess valdandi að dælustöð fyrir heitt vatn við Fitjar sló út í um 30 mínútur. Í kjölfarið varð heitavatnslaust eða minni þrýstingur á kerfinu hjá einhverjum notendum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum, sem sjá má hér að neðan: Til upplýsinga fyrir viðskiptavini okkar á Suðurnesjum hafa einhverjir viðskiptavinir orðið varir við heitavatnsleysi. Útsláttur á Suðurnesjalínu 1 sem olli rafmagnsleysi fyrr í dag á öllum Suðurnesjum varð til þess að dælustöð fyrir heitt vatn við Fitjar sló út í um 30 mínútur. Hefur það orðið til þess að heitavatnslaust er eða minni þrýstingur á kerfinu hjá einhverjum notendum, þá helst í Suðurnesjabæ, í Vogum og við Vatnsleysuströnd þar sem það tekur kerfið tíma að ná upp þrýstingi aftur. Við erum vongóð um að um kl. 19 eigi allir viðskiptavinir að vera komnir með heitt vatn aftur. Meira frá SuðurnesjumGrafari olli heitavatnsleysi á SuðurnesjumMinni vatnsnotkun með tilkomu mælaLæsissáttmáli undirritaður í GrindavíkBreytingar á akstri strætó yfir jól og áramótEkki vitað hvað olli klukkustundar löngu rafmagnsleysi – Hafði áhrif á árangur í tölvuleikjumEnginn stuðningur frá ríkinu til VogaAnnar hvellur væntanlegur – Lögreglan þurfti að eltast við nokkur trampólín í gærHælisleitendur dæmdir til fangelsisvistarLok, lok og læs [...]