Nýjast á Local Suðurnes

Heimanámsaðstoð í Bókasafni Reykjanesbæjar

Heimanámsaðstoð í Bókasafni Reykjanesbæjar hefst 11. janúar nk. Starfsfólk Bókasafnsins og sjálfboðaliðar Rauða kross Suðurnesja bjóða upp á heimanámsaðstoð – Heilakúnstir – fyrir börn. Þetta er í fyrsta sinn á Suðurnesjum sem þessi þjónusta býðst, en verkefnið er unnið að fyrirmynd Borgarbókasafns.

Heilakúnstir er hópur barna frá 4. bekk sem hittist á mánudögum frá klukkan 14.00 – 15:30 og á miðvikudögum frá klukkan 14.30-16.00 í Bókasafni Reykjanesbæjar. Nemendur fá aðstoð við heimanám og skólaverkefni frá sjálfboðaliðum Rauða krossins. Nemendur og sjálfboðaliðar hittast á neðri hæð safnsins í vinnuherbergi sem nefnist ,,Búrið“. Afslappað andrúmsloft verður í forgrunni þar sem hver og einn hefur tækifæri til að vinna á eigin hraða.
Verkefnið er samstarfsverkefni Bókasafns Reykjanesbæjar og Rauða krossins á Suðurnesjum og er unnið að fyrirmynd Heilahristings sem er heimanámsaðstoð á vegum Borgarbókasafnsins.

Bókasafnið hentar vel fyrir starfsemi sem þessa þar sem það er hlutlaus, afslappaður og óformlegur staður þangað sem allir eru velkomnir. Segja má í raun að Bókasafnið sé eins konar gátt inn í samfélagið. Auk þess nýtist safnkostur Bókasafnsins vel í námi og leggur starfsfólk sig fram við að aðstoða nemendur og sjálfboðaliða í leit að gögnum og upplýsingum.

Heimanámsaðstoðin er ókeypis og allir eru velkomnir. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram.
Umsjón með heimanámsaðstoðinni hefur Kolbrún Björk Sveinsdóttir.
Óskað er eftir sjálboðaliðum í þetta verkefni sem heyrir undir Heimsóknarvini Rauða krossins. Samkvæmt reglum Rauða krossins þurfa allir sjálfboðaliðar að skila inn hreinu sakavottorði.

Áhugasamir geta haft samband við skrifstofu Rauða krossins (Fanney) í síma 420-4700 eða sent póst á netfangið kolbrunbjork@gmail.com