Nýjast á Local Suðurnes

Hefja bólusetningar í dag

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur fengið um 800 skammta af bóluefni gegn mislingum og mun bólusetning hefjast í dag, föstudaginn 15. mars.

Samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis hjá Embætti landlæknis, skal bólusetja þá sem eru óbólusettir á aldrinum 12 mánaða til 49 ára, bóluefnið er þeim að kostnaðarlausu, en fullorðnir greiða fyrir komugjald.

Tímabókanir á heilsugæsluna í Reykjanesbæ fara fram á heilsuveru.is en einnig er hægt að bóka tíma í síma 422-0500. Vinsamlegast notið frekar tímabókun í Heilsuveru til að minnka álag á símkerfi stofnunarinnar.

Tímabókanir á heilsugæsluna í Grindavík fara fram í síma 422-0750 milli kl 8-15 alla virka daga. Ekki er verið að bólusetja þar um helgina.

Í fyrstu verður boðið upp á bólusetningar í dag milli kl 13-16 og á laugardeginum 16. mars kl 9-12 og 13-16.

Þeir aðilar sem hafa fengið eina bólusetningu eða eru eldri en 49 ára (fæddir fyrir 1970) eru ekki í forgangshópi og fá því ekki bólusetningu að sinni.

Ónæmisbældir einstaklingar þurfa að ráðfæra sig við sérfræðilækni sinn til að meta hvort viðkomandi eigi að fá bólusetningu en öllu jöfnu er reynt að forðast að gefa ónæmisbældum mislingasprautu.

HSS minnir á, í tilkynningu, að það hefur enginn á Suðurnesjum greinst með mislinga.