sudurnes.net
Haukur Hilmarsson skrifar vikulega pistla um fjármál - Local Sudurnes
Haukur Hilmarsson fjármálaráðgjafi mun skrifa vikulega pistla um fjármál á Local Suðurnes. Haukur er með BA próf í félagsráðgjöf og vottaður Financial Social worker og starfar sem ráðgjafi á Velferðarsviði Reykjansebæjar. Haukur Hilmarsson fjármálaráðgjafi Haukur hefur undanfarin ár verið að sérhæfa sig í fjármálameðferð og hefur meðal annars kennt fjármálameðferð í valnámskeiði við Félagsráðgjafadeild HÍ. Haukur hefur gefið út bókina Betri fjármál, verkefnabók í fjármálameðferð, en þar fær lesandinn tækifæri til að breyta viðhorfum og hegðun gagnvart fjármálum sínum á meðan hann tekur til í heimilisbókhaldinu. Haukur er þekktur fyrir að vera með persónulega ráðgjöf, og kennir hann bæði almenningi og fagaðilum á námskeiðum nýja hegðun og viðhorf í fjármálum. Haukur hefur sjálfur reynslu af óreiðu í fjármálum og klúðraði hér um bil hjónabandi sínu með óheiðarleika í fjármálum, þessa reynslu sína nýtir Haukur til að aðstoða fólk þannig að það lendi ekki í sömu stöðu – Eftir þessa reynslu hófst þetta ferðalag og menntun sem varð síðar að sérhæfingu í fjármálahegðun og meðferð við því. Meira frá SuðurnesjumFær ekki að skrá lögheimili í SandgerðiLeoncie bannar flutning á lagi sínu á Ljósanótt – “Klíkunótt og skítamenningarnótt”Hlutverk neyðarstjórnar breytistRafræn stjórnsýsla aukin og dregið úr útgáfu prentaðs efnisReyna að þjónusta GrindvíkingaFlókin staða í Grindavík – Altjón á húsum [...]