Nýjast á Local Suðurnes

Háttsemi Daníels kostar bann

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur dæmt þjálfara Grindavíkur í Subway deild karla í eins leiks bann vegna brottrekstur sem hann fékk í leik liðsins gegn Þór á Akureyri.

Næsti leikur Grindavíkur er heimaleikur gegn Val þann 20. janúar og má gera ráð fyrir að Daníel missi af þeim leik.

Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Daníel Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Akureyri gegn Grindavík, sem fram fór þann 6. Janúar 2022