sudurnes.net
Hátíðardagskrá með óhefðbundnu sniði - Local Sudurnes
Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur með nokkuð óhefðbundnu sniði í Reykjanesbæ í ár vegna þeirra fjöldatakmarkana sem enn eru í gildi. Dagskráin hefst þó að vanda með hátíðardagskrá í Skrúðgarðinum í Keflavík. Vakin er athygli á breyttri tímasetningu en dagskrá hefst kl. 11:00 svo hún renni ekki saman við skemmtidagskrá, segir í tilkynningu. Fólki er velkomið að mæta í Skrúðgarðinn en dagskránni verður einnig streymt í gegnum Facebooksíðu Víkurfrétta. Í skrúðgarðinn marsera skátar með hátíðarfánann undir lúðrablæstri lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Óskar Ívarsson, starfsmaður Umhverfismiðstöðvar, dregur þjóðfánann að húni og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri flytur honum þakkarorð. Við þetta tilefni flytur Karlakór Keflavíkur þjóðsönginn. Setningarræða dagsins er í höndum Guðbrandar Einarssonar forseta bæjarstjórnar og ræðu dagsins flytur Ingvar Eyfjörð framkvæmdarstjóri Aðaltorgs. María Tinna Hauksdóttir, nýstúdent og dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja verður í hlutverki fjallkonu og flytur ættjarðarljóð. Í ár verður kleift, þrátt fyrir takmarkanir, að bjóða upp á skemmtidagskrá fyrir yngstu kynslóðina. Í stað þess að hún sé á einum stað eins og vant er verður boðið upp á fjórar staðsetningar, í tveimur stærstu bæjarhlutum Reykjanesbæjar, í samstarfi við öflug félagasamtök sem hafa tekið að sér að stýra dagskrá á hverjum stað. Þessi félög eru Fimleikafélag Keflavíkur, Taekwondodeild Keflavíkur, Unglingaráð Fjörheima og unglingaráð [...]