sudurnes.net
Harðfiskþjófur gómaður með fíkniefni í fórum sínum - Local Sudurnes
Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að hnupli í Nettó í Njarðvík í gær. Að auki var hann með fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn hafði í tvígang farið inn í verslunina til að hnupla. Í fyrra skiptið tókst honum ætlunarverk sitt og komst út með harðfisk og pakka af rafhlöðum. Í síðara skiptið var hann á leið út með tvenn heyrnartól þegar starfsmaður verslunarinnar stöðvaði hann. Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn og við öryggisleit á honum á lögreglustöð fundust svo fíkniefnin. Meira frá SuðurnesjumRagnheiður Sara tryggði sér sæti á Heimsleikunum í crossfit – Sigraði sinn riðil örugglegaKærur vegna utanvegaaksturs við gosstöðvarnarViðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna lítils eldsneytis á flugvélMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnNotast við ferjusiglingar fari allt á versta vegHerða reglur á HrafnistuheimilumRagnheiður Sara keppir á HM í olympískum lyftingum í dag – Fylgstu með í beinni!Óopnuðum jólapökkum stolið í innbrotiSbarro opnar á KEFFA ósátt við Express-þjónustu Fríhafnarinnar