Nýjast á Local Suðurnes

Harðfiskþjófur gómaður með fíkniefni í fórum sínum

Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að hnupli í Nettó í Njarðvík í gær. Að auki var hann með fíkniefni í fórum  sínum. Maðurinn  hafði í tvígang farið inn í verslunina til að hnupla.

Í fyrra skiptið tókst honum ætlunarverk sitt og komst út með harðfisk og pakka af rafhlöðum. Í síðara skiptið var hann á leið út með tvenn heyrnartól þegar starfsmaður verslunarinnar stöðvaði hann. Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn og við öryggisleit á honum á lögreglustöð fundust svo fíkniefnin.