Handteknir eftir að hafa “læðupokast” við fíkniefnasölu
Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo karlmenn í síðustu viku eftir að lögreglumaður á frívakt veitti því athygli að þeir lögðu bíl sínum við hlið annars bíls en báðir voru án skráningarnúmera og voru þeir að “læðupokast við að flytja eitthvað milli bifreiðanna,” segir í tilkynningu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Í kjölfarið mætti lögregla á vettvang og handtók mennina.
Við leit í sumarbústað og tveimur bifreiðum fann lögregla umtalsvert magn af kannabisefnum og á fimmta hundrað þúsund í peningum sem talin eru vera ágóði af fíkniefnasölu.
Við leit í bifreið þeirra fundust kannabisefni í neyslupakkningum í hólfi í afturstuðara hennar. Undir númerslausu bifreiðinni fannst svo enn meira kannabis sem komið hafði verið fyrir þar til geymslu.
Mönnunum var sleppt að lokinni skýrslutöku og sæta þeir tilkynningaskyldu.