Nýjast á Local Suðurnes

Handteknar um borð í vél Icelandair – Reyndu að stöðva brottvísun hælisleitanda

Mynd: Icelandair

Tvær kon­ur voru hand­tekn­ar í Kötlu, flug­vél Icelanda­ir, á Kefla­vík­ur­flug­velli eft­ir að þær reyndu að stöðva brott­vís­un hæl­is­leit­anda sem er um borð. Þetta kemur fram á vef mbl.is, en blaðamaður Morgunblaðsins er um borð í vélinni.

Flug­stjóri vél­ar­inn­ar hafi sagt lög­reglu­mönn­um að hann myndi ekki leggja af stað fyrr en ör­uggt væri að fleiri mót­mæl­end­ur séu ekki í vél­inni. Flug­freyj­ur hafi svo gengið um og spurt farþega hvort þeir væru sátt­ir við að vél­in legði af stað. Mót­mæli hafi verið fyr­ir utan flug­stöðina í morg­un vegna mál­efna hæl­is­leit­enda.

Sam­kvæmt lýs­ingu blaðamanns öskruðu kon­urn­ar yfir vél­ina og kröfðust þess að aðrir farþegar tækju þátt í að stöðva för vél­ar­inn­ar. Lög­reglu­menn hafi haldið ann­arri kon­unni niðri í gólf­inu. Þær hafi svo báðar verið hand­járnaðar efst í land­göngu­stig­an­um.

Vél­in er nú á leið í loftið með hæl­is­leit­and­ann um borð. Hann sat aft­ast í vél­inni og hafði sig ekki frammi á meðan uppá­kom­an stóð yfir, að sögn blaðamanns mbl.is.