Nýjast á Local Suðurnes

Handtekinn með fíkniefni falin í sígarettupakka

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni tvo ökumenn vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Farþegi í annarri bifreiðinni reyndist vera með fíkniefni í sígarettupakka, sem hann bar á sér. Hann var einnig handtekinn og færður ásamt ökumönnunum tveimur á lögreglustöð.

Þá voru sex ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 121 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.