Handflokka þúsundir taskna – Fimm milljónir taskna fara um flokkunarkerfið í ár
Starfsfólk flugþjónustufyrirtækjanna á Keflavíkurflugvelli hafa haft í nógu að snúast í dag, en verið er að taka í notkun nýtt farangursflokkunarkerfi í flugstöðinni, þannig að handflokka þarf allan farangur næstu daga. Isavia, Rekstraraðili Keflavíkurflugvallar, biðlaði til farþega um að mæta þremur tímum fyrir brottför næstu daga, til að komast hjá töfum vegna þessa.
Magn farangurs sem fer um Keflavíkurflugvöll hefur aukist í samræmi við aukinn fjölda ferðamanna. Um 7.000 töskur fara um flokkunarkerfið þessa dagana en til samanburðar var stærsti dagur ársins 2013 um 6.000 töskur.
Gert er ráð fyrir því að í júlímánuði þegar mest gengur á verði á bilinu tíu til tólf þúsund töskur flokkaðar á Keflavíkurflugvelli á hverjum degi. Þá muni tæplega fimm milljónir taskna fara um flokkunarkerfið í ár.
Nýtt 3.000 fermetra hús var byggt um nýja flokkunarkerfið en með því er meðal annars betri aðstaða til að flokka farangur í tengiflug sem hefur aukist mikið en einnig fyrir farangursgáma breiðþotna líkt og þeirra sem Icelandair og Wow Air eru að taka í notkun.