Handtekinn á Keflavíkurflugvelli í “meðalstóru” fíkniefnamáli
Þrír sitja nú í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að fíkniefnainnflutningi. Einn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gær og tveir í Kópavogi. Samkvæmt upplýsingum sem mbl.is hefur frá fíkniefnadeild lögreglunnar er um að ræða „meðalstórt“ mál en frekari upplýsingar um efni eða magn liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Einn mannanna var dæmdur í tíu daga gæsluvarðahald en hinir tveir í viku.