sudurnes.net
Halldór nýr formaður Kkd. Njarðvíkur - Local Sudurnes
Halldór Rúnar Karlsson tók við sem formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur á aukaaðalfundi deildarinnar í gærkvöldi. Halldór hefur síðustu ár verið einn af aðstoðarþjálfurum meistaraflokks karla en hann á að baki 200 leiki með Njarðvík í úrvalsdeild. Halldór tekur við af Kristínu Örlygsdóttur en Krístin og fimm aðrir stjórnarliðar létu af störfum við fundinn í gær, segir í tilkynningu á vef Njarðvíkur. Í formannstíð Kristínar varð kvennalið Njarðvíkur Íslandsmeistari tímabilið 2021-2022 en karlaliðið varð einnig bikarmeistari og deildarmeistari. Út úr stjórn gengu þau Kristín Örlygsdóttir, Teitur Örlygsson, Gunnar Örlygsson, Agnar Mar Gunnarsson, Brenton Birmingham og Einar jónsson. Ný stjórn deildarinnar sem var kjörin einróma við aukaaðalfundinn í gær skipa þá: Halldór Karlsson – formaður Meðstjórnendur:Vala Rún VilhjálmsdóttirHafsteinn SveinssonGeirný GeirsdóttirJón Haukur HafsteinssonEyrún Ósk ElvarsdóttirÓlafur Bergur Ólafsson VarastjórnEmma Hanna EinarsdóttirÁrni EinarssonMargrét SörensenRagnar ÞórHilmar Þór ÆvarssonÍsak Ragnarsson Meira frá SuðurnesjumKristín endurkjörin formaðurFriðrik áfram formaður í NjarðvíkÓtrúlegar lokasekúndur þegar Grindavík tryggði sér sæti í 16 liða úrslitumUnglingalandsliðin í körfu: Framtíðin er björt á SuðurnesjumArnar tekur við NjarðvíkSunneva Dögg og Eydís Ósk í sérflokki á Actavismóti SHSunddeild ÍRB með 10 Íslandsmeistaratitla um helginaÞorvaldur hættur hjá KeflavíkFriðrik Ingi aftur í NjarðvíkurnarSunneva og Logi íþróttafólk UMFN 2015