Haldlögðu talsvert magn af kannabisolíu í “vape” vökva
Lögreglan á Suðurnesjum fann meint fíkniefni, lyf og stera í húsleit í umdæminu sem gerð var nýverið að fenginni heimild.
Grunur lék á að þar færi fram fíkniefnaframleiðsla og – sala með þeim hætti að kannabisolíu væri blandað saman við „vape“ vökva og hann seldur í ágóðaskyni. Í húsleitinni var talsvert magn af þeim vökva haldlagt svo og fleiri vökvar í krukkum. Meint örvandi efni fundust einnig á staðnum sem og kannabis. Þá voru ýmis mæliglös og önnur áhöld haldlögð.
Notkun á kannabisvökva í rafrettum er vaxandi vandamál, en auðvelt er að nálgast slíkan vökva, meðal annars á sölusíðum á Facebook, að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Suðurnesjum.
Málið er í rannsókn.