Nýjast á Local Suðurnes

Haldlögðu mikið magn af landa og sterum

Mikið magn af landa, sterar og kannabisplöntur fundust í húsnæði í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á sunnudag þegar húsleit var framkvæmd að fenginni heimild. Jafnframt voru á staðnum eimingartæki til áfengisframleiðslu.

Það sem blasti við þegar inn var komið voru fáeinar kannabisplöntur í pottum og aðrar sömu tegundar sem vafið hafði verið inn í handklæði. Kannabisfræ fundust einnig.

Þá fundust tugir ampúla með ætluðum sterum.

Rúmlega tuttugu hálfs lítra flöskur með landa voru einnig haldlagðar svo og ein glerkrús með krana. Loks fundust tvær stórar fötur, einnig með landa í.

Tveir karlmenn voru handteknir og hafa þeir verið yfirheyrðir.