sudurnes.net
Hald lagt á fíkniefni við húsleit - Áhersla lögð á að uppræta framleiðslu fíkniefna - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á nokkurt magn amfetamíns og kannabisefna í húsleit sem gerð var í umdæminu nýverið, að fenginni heimild. Á öðrum stað fundust einnig fíkniefni sem talin eru hafa verið ætluð til sölu og dreifingar. Þá voru tveir einstaklingar til viðbótar staðnir að vörslu á kannabisefnum. Annar þeirra framvísaði efninu en hinn kastaði poka með kannabisefnum út úr bifreið, sem lögregla stöðvaði við hefðbundið umferðareftirlit. Lögreglan á Suðurnesjum stendur nú að áhersluverkefni sem felst í því að uppræta framleiðslu fíkniefna í umdæminu og stöðva sölu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Meira frá SuðurnesjumLjósanótt er hátíð fyrir alla fjölskylduna – Biðla til foreldra að virða útivistarreglurStefnt að uppbyggingu miðlægs íþróttasvæðis – Framkvæmdir hefjist á næsta áriFöstudagsÁrni: Það var allt í fokki á Alþingi í vikunniGerum Ljósanæturhátíðina ánægjulega fyrir börnin okkar – Frá upphafi til endaGríðarlega erfiðar aðstæður við leit í Grindavík – MyndirLeggja fram aðlögunaráætlun – Forsendur að samningar náist við kröfuhafaReykjanesbær semur við kröfuhafa – Vilja mikla niðurfærslu skuldaFjárhagsáætlun Reykjanesbæjar – Framlegð batnar verulegaHefja framkvæmdir við undirgöng – Hraða [...]