Nýjast á Local Suðurnes

Hagstæð leið til að njóta þess sem Ísland hefur upp á að bjóða

Landsmenn munu verða duglegir við að ferðast innanlands í sumar, enda afar erfitt að skipuleggja ferðalög erlendis um þessar mundir.

Ef eitthvað er að marka ferðaspjallsíður á samfélagsmiðlum er fólk á fullu við að skipuleggja ferðalög þessi dægrin og leita að góðum kostum því tengdu.

Ein leið er sú að leigja innréttaðan bíl hjá Tjaldbílum, en létt könnun blaðamanns á veraldarvefnum leiddi í ljós að leigan, sem staðsett er á Suðurnesjum bjóði upp á einna bestu verðin og fjölbreytnina sem finna má á markaðnum. Bílar fyrirtækisins eru einnig nýlegir og með þeim best búnu sem völ er á.

Um er að ræða frábæra ferðabíla þar sem tjald og bíll er sameinað í einn hagkvæman kost fyrir ferðamenn.

Tveggja manna bíll hefur eftirfarandi búnað, svo dæmi sé tekið:

  • Oliu hitakerfi sem tengist við útblásturskerfi bílsins

  • Svefnpokar

  • Ísskápur

  • Teppi

  • Koddar

  • Gashella

  • Eldhúsáhöld

  • Útileguborð og stólar

​Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni tjaldbilar.is, en þar kemur meðal annars fram að fjórði hver dagur er ókeypis.