Nýjast á Local Suðurnes

Hagræða í rekstri Reykjaneshafnar

Vegna alvarlegs skuldavanda Reykjaneshafnar, langvarandi rekstrarvanda og mikils samdráttar í verkefnum hafnarinnar, sem meðal annars má rkja til gjaldþrots kísilverksmiðju Sameinaðs Sílikons hf. og samdráttar í innflutningi á eldsneyti, hefur verið tekin ákvörðun um hagræðingu í rekstri hafnarinnar.

Hagræðingarnar felast meðal annars í því að fækka stöðugildum hjá Reykjaneshöfn og endurskipuleggja fyrirkomulag bakvakta úr tvöföldu kerfi í eitt. Lagt var til á fundi stjórnar hafnarinnar að samþykkt verði fyrirliggjandi tillaga hafnarstjóra um hvernig staðið verður að þeirri framkvæmd. Sú tillaga var samþykkt samhljóða.