sudurnes.net
Hafbjörg færði Barnaspítala Hringsins veglega gjöf - Local Sudurnes
Unglingadeildin Hafbjörg í Grindavík færði Barnaspítala Hringsins 174.633 krónur sem söfnuðust á Landsmóti unglingadeilda sem haldið var í Grindavík í sumar. Peningnum var safnað í klósettpappírssölukeppni en á landsmótinu var öllum þátttakendum skipt í níu blandaða hópa sem allir kepptu meðal annars í því að selja klósettpappír, pokahlaupi og böruburði svo eitthvað sé nefnt. Alls voru þátttakendur á mótinu tæplega 400 af öllu landinu en hver hópur fékk einungis 8 klósettpappírsrúllur og hálftíma til þess að selja og verður því ágóðinn að teljast ansi góður en á þeim tíma var verið að safna fyrir eitthvað gott málefni fyrir alla. Þegar starfið fór af stað í haust ákváðu félagar unglingadeildarinnar Hafbjargar að gefa Barnaspítala Hringsins peningana og þannig koma peningunum aftur til samfélagsins. Bæjarbúum í Grindavík eru færðar sérstakar þakkir fyrir þolinmæði og jafnframt fyrir stuðninginn en þeir keyptu allan klósettpappírinn á uppsprengdu verði. Meira frá SuðurnesjumSameinað sveitarfélag fær 400 milljóna framlagKeflvíkingar bikarmeistarar eftir sigur á NjarðvíkingumSigur hjá Grindavík – Tap hjá KeflavíkSkilaði af sér um 30 pakkningum af kókaíni á lögreglustöðDominos-deildin: Njarðvík og Grindavík töpuðuGrindavík í 8 liða úrslit Maltbikarsins“Er klár í slaginn á ný” – Sverrir Þór tekur við KeflavíkFöstudagsÁrni – Meiri hávaði af borgarlínu en herflugvélLeikskólastjórar vilja stofna [...]