Hafa selt jafnmargar íbúðir í ár og seldust allt síðasta ár
Sala íbúða hjá fasteignaþróunarfélaginu Ásbrú ehf. á Ásbrú í Reykjanesbæ hefur gengið vonum framar það sem af er ári, en fyrirtækið hefur selt um 20 íbúðir það sem af er ári, sem er sama sala og allt árið í fyrra.
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir í samtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins að ástæðurnar séu margvíslegar. Líklega sé lægra vaxtastig en áður í landinu nú um stundir þó stærsta ástæðan fyrir því hve vel salan gangi. Auk þess séu íbúðirnar nýuppgerðar, aðlaðandi og á góðu verði.