sudurnes.net
Hafa gefið út rýmingaráætlun fyrir Grindavík - Local Sudurnes
Al­manna­varn­ir hafa gefið út rým­ingaráætl­un fyr­ir Grinda­vík­ur­bæ ef til eld­goss eða stórra jarðskjálfta kem­ur. Skýr­ing­ar­mynd sem fylg­ir með áætl­un­inni út­list­ar flótta­leiðir inn­an­bæjar sem og út úr bæn­um. Þar koma fram upp­lýs­ing­ar um helstu stofn­an­ir og söfn­un­ar­miðstöðvar. Flótta­leiðir úr bæn­um eru um Nes­veg, Grind­ar­vík­ur­veg og Suður­strand­ar­veg. Tekið er fram að ef til rým­ing­ar komi muni koma boð frá Neyðarlín­unni (112). Er íbú­um þá skylt að rýma hús sín. Fólk skuli þá: Ganga frá hús­um sín­um – loka glugg­um, af­tengja raf­magns­tæki og muna eft­ir viðlaga­kass­an­um.Yf­ir­gefa heim­ili sín – Líma skal miða á áber­andi stað að húsið hafi verið yf­ir­gefið.Huga að ná­grönn­um og sam­starfs­fólki ef hægt er.Aka burt með aðgát.Taka upp gang­andi flótta­fólk ef rými er í bif­reiðum.Hlusta á út­varp og fylgj­ast með fjöl­miðlum.Skrá sig í fjölda­hjálp­ar­stöð utan Grinda­vík­ur. Ekki nauðsyn­legt að koma við í söfn­un­ar­miðstöðinni Til­kynna á um þörf á aðstoð og slys í síma 112. Sé ekki síma­sam­band skuli hvít veifa sett á hurð eða glugga. For­eldr­ar eða for­ráðamenn skulu sækja börn sín á leik- og grunn­skóla. Eru þeir hvatt­ir til að sækja þau fót­gang­andi ef aðstæður leyfa. Fjölda­hjálp­ar­stöðvum verður komið á lagg­irn­ar í Reykja­nes­höll­inni í Reykja­nes­bæ, Kórn­um í Kópa­vogi og Valla­skóla á Sel­fossi. Söfn­un­ar­miðstöð í Grinda­vík­ur­bæ verður í íþróttamiðstöðinni. Ekki er nauðsyn­legt [...]